Tilkynningar | 04. september 2018 - kl. 09:36
Starfsmaður óskast á Blönduósi
Tilkynning

Heimilið við Skúlabraut á Blönduósi leitar eftir framtíðarstarfsmanni. Starfið er laust frá 1. október 2018. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir dagslegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Umsóknarfrestur er til og með 16. september 2018. Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Þar má jafnframt finna nánari upplýsingar um starfið sem og menntunar- og hæfniskröfur. Ari Jóhann Sigurðsson, forstöðumaður, svarar fyrirspurnum í síma 893-6673/452-4960 eða arijohann@skagafjordur.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga