Tilkynningar | 14. október 2018 - kl. 22:48
Prjónasamvera í Hnitbjörgum

Prjónasamvera verður hjá okkur í félags- og tómstundarstarfi í kjallara Hnitbjargar. Þriðjudaginn 16. október frá kl. 19:30 til 21:30. Prjónasamveran er öllum opið.

Komum saman og sitjum í notalegu umhverfi, spjöllum, prjónum, heklum eða gerum ekkert annað en vera með. Heitt á könnunni.

Stefnt verður að vera með prjónasamveru annan hvern þriðjudag. Næsta samvera verður 30. október.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga