Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 19. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:35 0 0°C
Laxárdalsh. 10:35 0 0°C
Vatnsskarð 10:35 0 0°C
Þverárfjall 10:35 0 0°C
Kjalarnes 10:35 0 0°C
Hafnarfjall 10:35 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
70. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
03. mars 2024
Fyrirtæki ársins.
Fyrirtæki ársins.
Sproti ársins.
Sproti ársins.
Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Fréttir | 20. október 2018 - kl. 15:03
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi
Fréttatilkynning

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi 2018 fór fram í fyrradag í Húnaþingi vestra og óhætt er að segja að hún hafi verið frábær. Húnvetningar tóku vel á móti kollegum sínum í ferðaþjónustu og farið var í heimsóknir til ýmissa fyrirtækja á svæðinu og nýr útsýnispallur við Kolugljúfur var sömuleiðis skoðaður. Um kvöldið var haldin vegleg veisla í veislusalnum á Hótel Laugarbakka, þar sem dansinn dunaði fram eftir nóttu.

Venju samkvæmt voru þrjár viðurkenningar veittar; Sproti ársins, Fyrirtæki ársins og viðurkenning fyrir störf í þágu ferðaþjónustunnar.

Fyrirtæki ársins
Viðurkenningin Fyrirtæki ársins er veitt fyrirtæki sem er búið að slíta barnsskónum og hefur skapað sér sterka stöðu á markaði. Fyrirtækið hefur unnið að stöðugri uppbyggingu, vöruþróun og nýsköpun og er með höfuðstöðvar á Norðurlandi. Það fyrirtæki sem fær viðurkenninguna í ár er Hotel Natur.

Í kringum árið 2004 fóru þau Stefán Tryggvason og Inga Margrét Árnadóttir að hugsa um að hætta að vera kúabændur og vildu snúa sér að ferðamennsku. Árið 2005 höfðu þau gert breytingar á fjósinu og hlöðu, og opnuðu þar 10 herbergja hótel. Árin á eftir fylgdu fleiri breytingar og herbergin eru nú 36 talsins.

Hotel Natur er sannkallað fjölskyldufyrirtæki, þar sem foreldrarnir hafa séð um að stýra skútunni en börnin koma að daglegum rekstri og þá sérstaklega yfir sumartímann. Mikil áhersla hefur verið lögð á umhverfismál og endurnýtingu. Engar nýjar byggingar hafa verið byggðar heldur þeim gömlu breytt og nýjasta dæmið um það er útsýnispallurinn í súrheysturninum. Sumir myndu reyndar segja að Stefán hefði ákveðið blæti fyrir turnum, enda var hann ekki lengi að tryggja sér glerturnana sem áður hýstu keiluhöllina á Akureyri þegar hún var rifin niður. Fyrirtækið er til fyrirmyndar á mörgum sviðum og við hin getum svo sannarlegt lært mikið af fjölskyldunni á Þórisstöðum.

Sproti ársins
Viðurkenningin Sproti ársins er veitt ungu fyrirtæki sem hefur skapað eftirtektarverða nýjung í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Það fyrirtæki sem fær verðlaunin í ár er Hótel Laugarbakki.

Það er ekkert lítið verkefni sem þau Hildur Ýr og Örn réðust í þegar þau ákváðu að breyta þessum gamla héraðsskóla hér í heilsárs hótel. Eins og þið hafið nú þegar séð hefur þeim tekist vel upp og herbergin hér eru stórglæsileg. Hótelið er það stærsta á Norðurlandi vestra og með opnun þess opnuðust nýir möguleikar bæði fyrir ferðafólk og þá sem starfa í ferðaþjónustu hér í nágrenninu. Mjög mikilvægt er að hafa svona valmöguleika í gistingu hér á þessu svæði og ekki skemmir fyrir hve auðvelt er að halda hér alls kyns viðburði, ráðstefnur og fleira. Veitingastaðurinn Bakki setur svo punktinn yfir I-ið.

Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi
Viðurkenninguna fyrir Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi fær einstaklingur sem hefur haft góð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi í heild sinni og hefur starfað beint eða óbeint fyrir ferðaþjónustu á svæðinu og er það Skagfirðingurinn Svanhildur Pálsdóttir sem hlýtur þessa viðurkenningu.

Svanhildur hefur starfað í ferðaþjónustu í meira en áratug, en hún ásamt öðrum keypti Hótel Varmahlíð árið 2006 og gerðist hótelstjóri eftir að hafa starfað áður sem kennari. Í viðtali við Morgunblaðið sagðist hún stefna ótrauð að því að hafa hótelið áfram opið yfir vetrartímann eins og áður hafði verið gert og taldi að Varmahlíð og Skagafjörður ætti mikið inni í ferðaþjónustu. Þar myndi það skipta sköpum að fyrirtæki á svæðinu myndu vinna saman að því fá ferðamenn til að stoppa á svæðinu. Það voru orð að sönnu þá og þau eiga sannarlega við enn í dag, ekki bara á þessu svæði heldur alls staðar.

Í gegnum árin hefur Svanhildur sinnt þessu samstarfi vel og var lengi í stjórn Markaðsstofu Norðurlands og þar af formaður í nokkur ár. Auk þess var hún ein af stofnendum Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði og gegndi einnig formennsku þar til langs tíma. Auk þess hefur hún setið í stjórnum Ferðamálasamtaka Íslands og Ferðamálasamtaka Norðurlands vestra.

Hótel Varmahlíð var selt til nýrra eigenda í fyrra og nú er veruleiki Svanhildar ekki bundinn við raunheima, því hún hóf nýlega störf hjá 1238 Battle of Iceland á Sauðárkróki. Sýndarveruleiki er þar nýttur til þess að leyfa gestum að upplifa Örlygsstaðabardaga og það er því ljóst að ferðaþjónusta í Skagafirði og á Norðurlandi öllu mun áfram njóta góðs af reynslu og kröftum Svanhildar.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið