Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 23. október 2018 - kl. 10:50
Kynningarfundur um nýtingu húsa

Almennur kynningarfundur um nýtingu húsa verður haldinn á loftinu í gamla Kaupfélaginu á Skagaströnd miðvikudaginn 24. október klukkan 17. Þar mun Guðjón Bjarnason arkitekt og listamaður fjalla um nýtingu húsanna Fjörubrautar 6-8 og ýmsar aðrar hugmyndir sem hann hefur um skipulag og nýtingu húsa og byggðar á Skagaströnd.

Guðjón dvaldi í sumar á Skagaströnd á vegum Nes listamiðstöðvar og Salthússins og tók þá til skoðunar hvernig mætti nýta umrædd rými. Fundurinn er öllum opinn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga