Duo Verum
Duo Verum
Fréttir | 26. október 2018 - kl. 19:30
Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu

Stofutónleikar fara fram í Heimilisiðnaðarsafninu sunnudaginn 28. október klukkan 15:00. Þar mun Duo Verum, þau Kristrún Helga Björnsdóttir á flautu og Þröstur Þorbjörnsson á gítar, flytja fjölbreytta tónlist. Á efnisskrá verður að mestu hugljúf og seyðandi tónlist en þó með örlitlu uppbroti inn á milli. Létt barokk stemning, innhverfur franskur módernismi og seyðandi Argentískur tango.

Eftir tónleikana verður boðið upp á veitingar að hætti safnsins.

Aðgangseyrir kr. 1.500 – ókeypis fyrir börn.

Ath! ekki tekið við greiðslukortum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga