Fréttir | 12. nóvember 2018 - kl. 09:17
Tryppakvöld Lóuþræla

Karlakórinn Lóuþrælar heldur matar- og skemmtikvöld í Félagsheimilinu Hvammstanga laugardaginn 17. nóvember næstkomandi. Á matseðlinum verður folaldakjöt ýmist steikt eða grafið. Á dagskrá kvöldsins verður kórsöngur, fjöldasöngur, ávarp Bergþórs Ólasonar, þingmanns Norðvesturkjördæmis, að ógleymdu leyniatriði og hrað-uppboði.

Allir eru hvattir til að koma, syngja og njóta.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga