Fréttir | 12. nóvember 2018 - kl. 14:08
Félagsvist á Borginni

Í byrjun þessa mánaðar auglýsti Kvenfélagið Vaka tvö spilakvöld sem fram fara á Borginni á Hótel Blöndu á Blönduósi. Fyrra spilakvöldið fór fram síðastliðinn fimmtudag og seinna spilakvöldið verður næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 20:00. Aðgangseyrir er kr. 1.500 og er kaffi og meðlæti innifalið. Kvenfélagskonur hvetja alla að mæta og spila félagsvist í notalegu umhverfi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga