Fréttir | 24. nóvember 2018 - kl. 08:45
Upplestur í Heimilisiðnaðarsafninu

Á morgun sunnudag, 25. nóvember klukkan 15, fer fram upplestur úr nýjum bókum á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Höfundarnir Jón Björnsson frá Húnsstöðum, Hólmfríður K. Gunnarsdóttir frá Æsustöðum og Sigurður Pétursson frá Merkjalæk ætla að kynna nýútkomnar bækur sínar og lesa upp úr þeim. Eftir lesturinn verður gestum boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga