Tilkynningar | 21. nóvember 2018 - kl. 22:20
Nokkur sæti laus í orlofsferð
Frá nefndinni

Vegna forfalla eru nokkur sæti laus í orlofsferð austur-húnvetnskra kvenna til Berlín 11.-15. apríl 2019. Áhugasamar konur sem vilja koma með er bent á að hafa samband við Lindu Björk í síma 692 3929 eða Vigdísi Elvu í síma 891 7869 sem fyrst.

Ferðaplan:
11.04. Flogið með Icelandair, FI-528 klukkan 07:40 til Berlínar lending kl: 13:05 að staðartíma.

Berlín er höfuðborgar Þýskalands. Þegar þangað kemur verður farið í stutta skoðunarferð um borgina. Berlín er sú borg í Evrópu sem er í hvað örustum vexti. Þetta er svipmikil borg með litríka sögu að baki. Hún var eitt sinn höfuðborg Brandenborgar og síðar Prússlands. Á árunum 1871 til 1945 var hún höfuðborg sameinaðs Þýskalands og það hlutverk sitt endurheimti hún svo árið 1990. Berlín var að miklu leiti í rúst eftir hildarleik seinni heimsstyrjaldar og undir lok hennar laust herjum Þjóðverja og Sovétmanna saman á götum borgarinnar en nú hefur hún að mestu verið endurreist. Á síðustu öld var borginni skipt með múr milli tveggja ríkja, tveggja hugsjóna og tveggja stórvelda í tæpa þrjá áratugi og má enn sjá merki þessara skiptingar þó þau fari hverfandi. Að skoðunarferð lokinni er haldið á Hótel Park Inn Radisson við Alexanderplatz þar sem gist verður í ferðinni.  Sameiginlegur kvöldverður um kvöldið.

12.04. Boðið verður upp á gönguferð um gamla miðbæinn Mitte með leiðsögn fyrir hádegi. Eftir hádegi er svo hægt að skoða sig um sjálfur, kíkja á kaffihús, rölta í búð og upplifa mannlífið.

13.04. Frjáls dagur en um kvöldið verður hátíðarkvöldverður og höfum við sal fyrir okkur þar sem við getum sprellað og skemmt okkur saman.

14.04. Dagsferð til Dresden. Dresden er höfuðborg sambandslandsins Saxlands og var áður nefnd “Flórens við Saxelfi”. Borgin var að mestu lögð í rúst í skelfilegri loftárás undir lok seinni heimsstyrjaldar í febrúar 1945. Fljótlega eftir stríð var byrjað að endurbyggja gamla miðbæinn og má segja að í dag sé því verki að mestu lokið. Þarna er að finna gullfallegar byggingar s.s. Semperóperuna, Zwinger-garðinn, Frúarkirkjuna, konungshöllin o.fl. Komið til Berlínar í lok dags.

15.04. Heimferðardagur. Haldið af stað frá hóteli út á flugvöll fyrir hádegi. Brottför með FI-529 kl. 14:05 og lent í Keflavík klukkan 15:40 að staðartíma.

Innifalið í verði er:  Flug +20kg taska, flugvallaskattar, gisting í tveggja manna herbergi, morgunverður, kvöldverður tvö kvöld, allur akstur og ferðir eins og í lýsingu og íslensk fararstjórn.

Verð á konu : 114.500 kr.

Lámarksfjöldi í ferðina er 30 konur og hámarksfjöldi 40 konur. 

Aukagjald fyrir einstaklingsherbergi er 23.500 kr.

 Nefndin

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga