Fréttir | 11. desember 2018 - kl. 09:25
REKO Norðurland

Stofnaður hefur verið hópur á Facebook sem heitir REKO Norðurland. REKO er tekið úr sænsku og er stytting á „vistvænir og heiðarlegir viðskiptahættir.“ Fyrirmyndin kemur frá Finnlandi og hefur verið að ryðja sér til rúms á Norðurlöndunum og á meginlandi Evrópu. Matarauður Íslands, í samvinnu við Bændasamtök Íslands, hefur unnið að því að koma REKO-hugmyndafræðinni af stað hér á landi og eru fleiri hópar að myndast um land allt.

Tilgangurinn með REKO er að efla nærsamfélagsneyslu og færa framleiðendur og kaupendur nær hver öðrum, gera matarhandverki og heimavinnslu hærra undir höfði og færa smáframleiðendur ofar í virðiskeðjunni.

Sérstakur viðburður er stofnaður í kringum hvern afhendingardag innan hvers REKO-hóps og bjóða framleiðendur vörur sínar til sölu með stöðufærslu inn í viðburðinum. Áhugasamir senda þeim svo skilaboð þar sem þeir tilgreina hvað þeir vilji kaupa, annaðhvort með athugasemdum við færslurnar eða í einkaskilaboðum. Vörur eru ekki til sölu á staðnum því þetta er eingöngu afhending á fyrirfram pöntuðum og greiddum vörum en ekki markaður. Allir matvælaframleiðendur með starfsleyfi hafa leyfi til að selja vörur sínar í gegnum þessa hópa.

Allir áhugasamir eru hvattir til að ganga í hópinn REKO – Norðurland, hvort sem þeir eru að selja eða hafa áhuga á að kaupa, nú eða bara fylgjast með þessari spennandi nýjung í verslun með matvæli.

Fyrsta REKO afhending á Blönduósi verður 20. desember næstkomandi og tilvalið að versla eitthvað góðgæti fyrir hátíðarnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga