Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:45 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:45 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:45 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:45 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:45 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:45 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Fagráð Smávirkjanasjóðs Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur lokið mati á umsóknum sem bárust vegna styrkja til fyrstu skrefa í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum á Norðurlandi vestra. Alls bárust 17 umsóknir en tvær uppfylltu ekki sett skilyrði í reglum sjóðsins. Stjórn SSNV samþykkti nýverið tillögur fagráðsins um að styrkja tíu verkefni, þrjú í Skagafirði, fimm í Austur-Húnavatnssýslu og tvö í Vestur-Húnavatnssýslu.
Smávirkjanaverkefnið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra á árinu 2018 og er framhaldsverkefni áhersluverkefnis frá árinu 2017 þar sem gerð var úttekt á smávirkjanakostum í landshlutanum. Tilgangur Smávirkjanasjóðsins er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum á Norðurlandi vestra sem eru undir 10 MW að stærð. Miðað er við yfirlit á mögulegum rennslisvirkjunum sem taldar eru upp í skýrslu Mannvits frá árinu 2018 sem heitir Frumúttekt á smávirkjanakostum á Norðurlandi vestra.
Þau verkefni sem ákveðið var að styrkja eru:
Í Skagafirði: Korná/Gljúfurá. Sellækur. Háleggsstaðaá.
Í Austur-Húnavatnssýslu: Kornsá. Giljá. Stekkjarlækur. Grjótá. Brunná.
Í Vestur-Húnavatnssýslu: Miðlunarlón á Þorgrímsstöðum. Illagilslækur.
Mótframlag umsækjenda er 100.000 krónur. Smávirkjanasjóður SSNV mun greiða allan annan kostnað af frumúttektinni. Á árinu 2019 er fyrirhugað að veita styrki úr sjóðnum til næsta skrefs, mats á virkjanlegu rennsli, frummati hönnunar og byggingarkostnaðar. Gert er ráð fyrir að úthlutun þess hluta verkefnisins verði auglýst um mitt ár 2019.
Tengd frétt:
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |