Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:07 0 0°C
Laxárdalsh. 14:07 0 0°C
Vatnsskarð 14:07 0 0°C
Þverárfjall 14:07 0 0°C
Kjalarnes 14:07 0 0°C
Hafnarfjall 14:07 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
Mynd: Hveravellir.is
Mynd: Hveravellir.is
Fréttir | 12. desember 2018 - kl. 09:45
Ferðaþjónustan á Hveravöllum til sölu

Hveravallafélagið ehf. hefur sett starfsemi sína á Hveravöllum á söluskrá. Um er að ræða allar fasteignir, tækjabúnað, innviði og lóðarleigusamning til reksturs ferðaþjónustu á Hveravöllum.

Hveravallafélagið hefur starfað áratugum saman á Hveravöllum. Síðustu árin hefur félagið varið um 100 milljónum króna í endurbætur húsa og búnaðar ásamt uppbyggingu innviða á borð við vatnsveitu og fráveitu í samstarfi við Umhverfisstofnun og fleiri aðila.

Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line er stærsti eigandi Hveravallafélagsins, aðrir hluthafar eru Húnavatnshreppur og Björn Þór Kristjánsson. Sveitarfélagið hefur óskað eftir því að fara út úr ferðaþjónusturekstrinum og eigendur Gray Line hafa ákveðið að einbeita kröftum sínum að rekstri eigin félags samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu við Skíðaskálann í Hveradölum.

Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Hveravallafélagsins segir í tilkynningu að ferðaþjónustan á Hveravöllum skapi mikil tækifæri en sé um leið krefjandi og kalli á óskipta athygli rekstraraðila. „Framundan eru miklir möguleikar í uppbyggingu og vöruþróun á svæðinu. Við teljum því mikilvægt að starfsemin komist í hendur aðila sem geta sinnt henni nú og til framtíðar. Með því að láta Hveravallafélagið af hendi getum við betur einbeitt okkur að uppbyggingaráformum í Hveradölum," segir Þórir

Ferðaþjónustan á Hveravöllum er opin allan ársins hring. Um 10 þúsund manns gista þar árlega í skálum, tjöldum og húsbílum. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu komu um 80 þúsund manns til Hveravalla árið 2016.

Fjölgun ferðamanna kallar á bætta aðstöðu á Hveravöllum og liggur fyrir tillaga að byggingu nýrrar hálendismiðstöðvar í samræmi við landsskipulag. Bygging hálendismiðstöðvarinnar er fyrirhuguð utan friðlýsta hverasvæðisins til að stuðla að vernd þess og sjálfbærri þróun. Fasteignasala Mosfellsbæjar annast söluna.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið