Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:10 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:10 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:10 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:10 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:10 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:10 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fjárhagsáætlun samstæðu A- og B-hluta sveitarsjóðs Húnavatnshrepps fyrir árið 2019 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar í gær. Gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu sem nemur um tæplega 27 milljónum króna. Tekjur eru áætlaðar 507 milljónir og gjöld með fjármagnsliðum 480 milljónir. Skuldahlutfallið er áætlað 50% fyrir árið 2019 sem má vera mest 150%. Í áætluninni eru álagningaprósentur fasteignagjalda óbreyttar frá yfirstandandi ári. Gjaldskrár hækka almennt í samræmi við verðlagsbreytingar nema að vistunargjald leikskóla og gjaldskrá fyrir skólamötuneyti hækka ekki.
Í fundargerð sveitarstjórnar segir að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 hafi, líkt og undanfarin ár, verið lögð áhersla á aðhald í rekstri. Jafnframt verði haldið áfram að viðhalda eignum sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir fjárfestingum og framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins að fjárhæð 91 milljón króna. Auk hefðbundinna viðhaldsframkvæmda er stefnt að því að klæða kennslustofuálmu að utan og endurbæta íbúðarhúsnæði í austurenda skólahúsnæðis. Áfram verður unnið að öðrum endurbótum skólahúsnæðis Húnavallaskóla og öðrum fasteignum sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tekin verði lán á árinu 2019 fyrir um 50 milljónir króna til að standa undir viðhaldsframkvæmdunum.
„Þrátt fyrir miklar framkvæmdir á liðnum árum er fjárhagsstaða sveitarfélagsins góð. Sífellt erfiðara verður að uppfylla kröfur um að áætlanir sýni jákvæða rekstrarniðurstöðu vegna aukins kostnaðar við nær alla málaflokka. Þar vegur aukinn launakostnaður þyngst, á meðan tekjur hafa ekki aukist í sama hlutfalli. Því er afar mikilvægt að halda áfram að sýna ráðdeild í rekstri,“ segir í fundargerð sveitarstjórnar frá 12. desember sl.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |