Riddarar næturinnar samankomnir að plotta við gömlu braggana. Ljósm: Ólafur Tómas Guðbjartsson
Riddarar næturinnar samankomnir að plotta við gömlu braggana. Ljósm: Ólafur Tómas Guðbjartsson
Snjóaveturinn mikli 1995
Snjóaveturinn mikli 1995
Blönduós verður bær og nýja brúin yfir í Hrútey vígð
Blönduós verður bær og nýja brúin yfir í Hrútey vígð
Fréttir | 13. desember 2018 - kl. 18:02
Út er komin smásagnabókin "Rækjublús"
Eftir Ólaf Tómas Guðbjartsson brottfluttan Blönduósing

Út er komin smásagnabókin „Rækjublús“ eftir Ólaf Tómas Guðbjartsson. Ólafur Tómas eða Óli Tómas, eins og flestir þekkja hann, bjó á Blönduósi á hans yngri árum og inniheldur bókin 12 smásögur sem gerast á Blönduósi milli 1986 – 1999.  

Þetta eru endurminningar ungs drengs sem gerði sitt besta að fanga öll ævintýrin í litlu rækjuþorpi út á landi, sem varð þó bær á endanum. Höfundur hefur verið að hripa niður smásögur frá æsku sinni síðastliðin ár og eftir mikla hvatningu, var ákveðið að skella þeim á prent fyrir þá sem hafa áhuga.

Bókin er framleidd í litlu upplagi og verður til sölu í verslun þeirra Eddu og Steina þar sem gamla Ríkið var við Aðalgötu 8.

Textabrot úr sögunni Fyrsti dagur sumarsins.

"Það gat verið vandasamt að finna sér eitthvað að gera á þessum fyrstu dögum sumarsins. Á milli skýja teiknuðu þotur hvítar línur á bláan himnastrigann fyrir ofan okkur. Hvert þykjast þær vera að flýta sér, hugsuðum við og flissuðum síðan þegar Valdi í Vísi hallaði sér upp að girðingunni á móti svo brakaði í fúnum viðnum sem gaf sig þó ekki af hollustu við eigandann. Engin þota vildi stoppa á Blönduósi. Hér var samt stærðarinnar flugvöllur, allavegana sá stæðsti sem við höfðum séð og hér var líka stundum fínt veður. Nóg var af afþreyingu fyrir afþreyingaþyrsta túrhestana.

Það var til dæmis hægt að fara í sund, ef þú þoldir gríðarlega mikið magn af klór, það var nóg af kola til þess að veiða við holræsin og auðvelt að fá rækju til beitu í rækjuverksmiðjunni. Hér var fataverslun, sem seldi, að því sem við best vissum, hina allra nýjustu tísku, bakarí, tvær sjoppur, tvær matvöruverslanir, bryggjan, vatnahverfið, mjólkurvindlar, gamall maður á litlum gulum traktor, stór kona með tóman barnavagn, lítil kona með staf og nóg af RC Cola fyrir alla. Afhverju vildi enginn koma hingað í frí? Við vorum löngu komin með leið á þessu öllu. Við höfðum veitt milljón kola við holræsin, séð allt skrítna fólkið milljón sinnum, gert dyraat í hverju húsi og drukkið RC Cola þegar við náðum að skrifa. Við sátum og fylgdumst með gömlum manni klifra upp í steypubíl, ásamt jafnvel eldri hundi með aðeins þrjár fætur sem skakklappaðist við hlið eiganda síns eins og afmyndaður skuggi." 

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga