Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 18:55 0 0°C
Laxárdalsh. 18:55 0 0°C
Vatnsskarð 18:55 0 0°C
Þverárfjall 18:55 0 0°C
Kjalarnes 18:55 0 0°C
Hafnarfjall 18:55 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 17. desember 2018 - kl. 10:34
Sýrlenskt flóttafólk til Húnaþings vestra

Á sveitarstjórnarfundi Húnaþings vestra í síðustu viku var lagt fram erindi frá velferðarráðuneytinu um móttöku flóttamanna. Í því er farið á leit við sveitarfélagið um að taka á móti sýrlensku flóttafólki á næsta ári, um 25 einstaklingum. Í því felst meðal annars aðstoð við að finna húsnæði til leigu og veita því nauðsynlega þjónustu og aðstoð í eitt ár frá komu þess til landsins. Gerður yrði samningur milli Húnaþings vestra og velferðarráðuneytisins þar að lútandi um fjárframlög til verkefnisins.

Í bókun sveitarstjórnar er erindinu fagnað og þeirri samfélagslegu ábyrgð sem því fylgir. Í bókuninni segir einnig: „Samfélagið í Húnaþingi vestra er umburðarlynt, skilningsríkt og styðjandi. Til staðar er fagþekking og stofnanir sveitarfélagsins eru öflugar. Því er sveitarstjórn sannfærð um að vel verði staðið að móttöku, utanumhaldi og stuðningi við flóttafólk.“

Sveitarstjóra var falið að undirrita fyrirliggjandi samning við velferðarráðuneytið. 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið