Frá Stekkjarvík.
Frá Stekkjarvík.
Fréttir | 17. desember 2018 - kl. 10:44
Starfshópur um framtíðarskipan úrgangsmála

Starfshópur um framtíðarskipan úrgangsmála á Norðurlandi hefur tekur til starfa en hann er sameiginlegt verkefni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Markmið verkefnisins er að leysa meðhöndlun og förgun úrgangs og sorps á Norðurlandi með hagkvæmum og umhverfisvænum hætti.

Starfshópnum er ætlað að greina mögulegar leiðir til aukins samstarfs sveitarfélaga á Norðurlandi hvað varðar förgun sorps og stilla upp raunhæfum valkostum í þeim efnum með umhverfisvernd, hagkvæmni og skynsamlega nýtingu að leiðarljósi.

Í starfshópnum eru Kristján Þór Magnússon, Norðurþingi, Gunnar I. Birgisson, Fjallabyggð og Einar E. Einarsson, Skagafirði. Með hópnum starfa framkvæmdastjórar SSNV og Eyþings, Unnur Valborg Hilmarsdóttir og Páll Björgvin Guðmundsson.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga