Þorsteinn Sigurjónsson. Ljósm: hunathing.is.
Þorsteinn Sigurjónsson. Ljósm: hunathing.is.
Fréttir | 18. desember 2018 - kl. 09:39
Þorsteinn ráðinn veitustjóri Húnaþings vestra

Þorsteinn Sigurjónsson rafmagnsverkfræðingur og MBA hefur verið ráðinn veitustjóri Húnaþings vestra og tekur hann til starfa 2. janúar 2019. Tvær umsóknir bárust um stöðuna. Staðan var auglýst í kjölfar breytinga sem gerðar voru á skipuriti Húnaþings vestra í kjölfar aukinna umsvifa sveitarfélagsins vegna veitna og annarra framkvæmda. Með breytingunum var starf sviðsstjóra veitu-, framkvæmda- og umhverfissviðs lagt niður og sérstakt starf veitustjóra stofnað.

Þorsteinn hefur langa og fjölbreytta starfsreynslu af sviði veitna. Frá árinu 2017 hefur hann starfað sem sviðsstjóri veitusviðs hjá Fjarðabyggð. Áður starfaði hann m.a. sjálfstætt sem ráðgjafi á sviði raforku, hjá Orku náttúrunnar, Orkuveitu Reykjavíkur, Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja, bæði sem stjórnandi og sérfræðingur.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga