Fréttir | 18. desember 2018 - kl. 21:03
Firmamót Hvatar 2018

Fyrirtækjamót Hvatar fer fram í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi laugardaginn 29. desember og er áætlað að hefja fyrsta leik klukkan 11:30. Mótið er fyrir alla og eru fimm leikmenn inn á í hverju liði. Þátttökugjald er 8.000 krónur á lið. Til þess að skrá lið þarf að senda tölvupóst á hamundur@simnet.is með upplýsingar um nafn liðs og fyrir hvaða fyrirtæki liðið keppir.

Skráning þarf að berast fyrir miðvikudaginn 26. desember. Knattspyrnudeild Hvatar hvetur öll fyrirtæki til að styrkja knattspyrnudeildina með því að senda lið til leiks.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga