Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 29. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:44 0 0°C
Laxárdalsh. 01:44 0 0°C
Vatnsskarð 01:44 0 0°C
Þverárfjall 01:44 0 0°C
Kjalarnes 01:44 0 0°C
Hafnarfjall 01:44 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
Björn og Hörður innsigla samninginn. Ljósm: Aðsend.
Björn og Hörður innsigla samninginn. Ljósm: Aðsend.
Við undirritun samningssins. Ljósm: Aðsend.
Við undirritun samningssins. Ljósm: Aðsend.
Fréttir | 19. desember 2018 - kl. 11:02
Rafmagnssamningur gerður fyrir gagnaverið

Landsvirkjun og gagnaversfyrirtækið Etix Everywhere Iceland ehf., dótturfélag Etix Everywhere Borealis, hafa undirritað rafmagnssamning um afhendingu 25 MW til nýs gagnavers á Blönduósi. Gagnaverið hefur hafið rekstur og standa þegar yfir framkvæmdir við stækkun þess. Gagnaverið á Blönduósi verður fyrsti stórnotandi rafmagns sem tengist beint við tengivirki Landsnets við Laxárvatn í Blönduósbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Fyrirtækið verður þriðji viðskiptavinur Landsvirkjunar í ört vaxandi gagnaversiðnaði hér á landi ef samningar ganga eftir. Umsvif Etix Everywhere Borealis hafa aukist hratt undanfarin misseri og verður gagnaverið á Blönduósi stærsta gagnaver sem fyrirtækið kemur að á Íslandi, en að auki rekur fyrirtækið gagnaver í Reykjanesbæ. Áætlað er að tölvur í gagnaverum í beinni eða óbeinni eigu Etix Everywhere Borealis verði um 30 þúsund talsins eftir þessa stækkun, en nýju gagnaverin eru svokölluð „High Performance Computing“ ver, þar sem mikil reiknivinnsla er fyrir hendi.

Endurnýjanlegar orkuauðlindir, samkeppnishæf kjör og íslenskt veðurfar eiga þátt í að skapa hagstæðar aðstæður fyrir öflugan gagnaversiðnað á Íslandi. Kalt og stöðugt loftslag dregur úr kostnaði við kælingu á tölvubúnaði sem hitnar mikið við notkun. Loftkælingin kemur í veg fyrir að eyða þurfi mikilli orku í að kæla búnaðinn og því er hagkvæmara að knýja hann á Íslandi en víða annars staðar í heiminum.

Orkan sem samningurinn nær til verður afhent úr núverandi aflstöðvakerfi Landsvirkjunar. Á þessu ári tók Landsvirkjun að fullu í notkun tvær nýjar aflstöðvar, Þeistareykjastöð, nýja jarðvarmastöð á Norðausturlandi og Búrfellsstöð II, neðanjarðarvatnsaflsstöð á Suðurlandi. Landsvirkjun rekur nú 15 vatnsaflsstöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur.  Samningurinn er háður tilteknum skilyrðum til þess að öðlast fullnaðargildi.

"Eftirspurn eftir orku Landsvirkjunar, sem unnin er úr endurnýjanlegum orkugjöfum, fer áfram vaxandi og með þessum samningi hefir enn eitt öflugt fyrirtækið bæst í hóp alþjóðlegra viðskiptavina okkar. Samningurinn staðfestir samkeppnishæfni Íslands á alþjóðlegum raforkumörkuðum, rennir fleiri stoðum undir reksturinn og styður við fjölbreytta uppbyggingu iðnaðar á Íslandi," segir Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar.

„Við erum í uppbyggingarfasa á nýrri kynslóð gagnavera sem nýta íslenskar umhverfisaðstæður og sérþekkingu Etix Everywhere í hönnun og smíði gagnaverslausna. Uppbyggingin á Blönduósi er markvisst skref í að minnka umhverfisfótspor viðskiptavina okkar og samningsorkan gerir okkur kleift að fara í umtalsverðar stækkanir þar," segir Björn Brynjúlfsson, forstjóri Etix Everywhere Borealis.

Um Etix Everywhere Borealis ehf.:
Etix Everywhere Iceland ehf. er dótturfélag og í 100% eigu Etix Everywhere Borealis ehf., sem er í meirihlutaeigu Etix Everywhere Ltd. sem er alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki og starfrækir gagnaver og þjónustu vegna þeirra um allan heim. Gagnaver Etix á Íslandi bjóða erlendum viðskiptavinum upp á umhverfisvænar lausnir mitt á milli markaða í Bandaríkjunum og meginlandi Evrópu.

Efri mynd: Forstjórarnir Hörður Arnarson og Björn Brynjúlfsson innsigla samninginn.

Neðri mynd: Eiríkur S. Svavarsson, lögmaður Etix Everywhere Borealis, Árni Jensen, framkvæmdastjóri hjá Etix Everywhere Borealis, Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun, Björn Brynjúlfsson, forstjóri Etix Everywhere Borealis, Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, Gylfi Már Geirsson, yfirmaður orkukaupa hjá Landsvirkjun, Vala Valþórsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Landsvirkjun og Geir Arnar Marelsson hdl, lögfræðingur hjá Landsvirkjun.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið