Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 02:49 0 0°C
Laxárdalsh. 02:49 0 0°C
Vatnsskarð 02:49 0 0°C
Þverárfjall 02:49 0 0°C
Kjalarnes 02:49 0 0°C
Hafnarfjall 02:49 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Bæjarskrifstofurnar á Blönduósi
Bæjarskrifstofurnar á Blönduósi
Fréttir | 12. janúar 2019 - kl. 10:21
Móttaka flóttafólks til skoðunar

Velferðarráðuneytið sendi sveitarstjórn Blönduósbæjar erindi hinn 11. desember síðastliðinn þar sem óskað er eftir því að sveitarfélagið taki á móti um 25 sýrlenskum flóttamönnum á þessu ári. Sveitarstjórn hefur að undanförnu haft málið til skoðunar og var málið til umfjöllunar á fundi bæjarráðs í vikunni. Í móttöku fólksins felst meðal annars að útvega því húsnæði til leigu og veita því nauðsynlega þjónustu og aðstoð í eitt ár.

„Við erum búin að lýsa yfir vilja til að skoða málið jákvætt en erum með dálítið stóran fyrirvara um húsnæðismál þar sem hér er þröngt um húsnæði eins og er þó að mikið sé í byggingu,“ segir Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar í samtali við Fréttablaðið í dag. Þar kemur fram að bæjarstjóri hafi sent ráðuneytinu bréf þar sem hann óskar nánari upplýsinga um málið, meðal annars um samsetningu hópsins og tímasetningar.

Að sögn Valdimars er sú hugmynd nú uppi að um 50 Sýrlendingum sem eru fjölskyldufólk verði skipt til helminga á Hvammstanga og á Blönduós sem síðan gæti jafnvel verið í samstarfi við Skagaströnd þar sem eitthvað sé af lausu húsnæði. „Ráðuneytið er að bjóða mjög víðtækan stuðning í eitt ár en eftir það ætti fólkið að vera komið í vinnu eða inn á einhvers konar bótakerfi,“ segir hann.

Blönduós hefur áður tekið á móti flóttafólki. Það var fyrir um tuttugu árum þegar þangað kom fólk sem flúði stríðsátökin á Balkanskaga. „Þeir stoppuðu reyndar ekki lengi. Það hafði ekkert út á staðinn að setja heldur fóru sumir til baka til síns heima þegar stríðinu lauk og aðrir fluttu til Reykjavíkur og hefur sumum vegnað þar mjög vel,“ segir Valdimar.

Bæjarstjórinn kveður meirihluta Blönduósinga jákvæðan gagnvart því að taka á móti nýjum hópi. Það sitji í sumum að mikil vinna hafi verið lögð í að taka á móti flóttafólkinu á sínum tíma en það síðan bara verið farið einn daginn. „Sumir spyrja sig hvort þetta fólk sé komið til að vera eða bara til að bíða af sér einhvern storm,“ segir hann.

Varðandi möguleika flóttafólksins til atvinnu segir Valdimar Blönduós vera vaxtarsvæði. „Það hefur verið skortur á fólki í þjónustustörf, umönnunarstörf og tæknistörf í kring um gagnaverið,“ segir hann og vísar til gagnvers Borealis Data Center sem hefur verið í byggingu utan við Blönduós frá því í fyrrasumar. „Það vantar líka hér á verkstæðin; vélvirkja og iðnaðarmenn alls konar.“

Vandamálið er hins vegar húsnæðisskortur sem fyrr segir. Sveitarfélagið sé með fimm hæða íbúðablokk í byggingu en hún verði ekki tilbúin fyrr en eftir 12 til 14 mánuði. „Við erum að ýta við byggingaverktökum sem hafa verið uppteknir við gagnaverið. Við vorum með sérstaka afslætti á lóðum og nú snúa þeir sér að því að byggja hús á þeim,“ segir bæjarstjórinn í Fréttablaðinu í dag.

Sjá nánar fréttina í Fréttablaðinu í dag hér.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið