Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:28 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:28 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:28 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:28 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:28 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:28 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Árleg Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra fór fram í vikunni með glæsibrag. Þar stigu nemendur á stokk, hver öðrum betri og frambærilegri, með stórgóða skemmtun fyrir áhorfendur. Í yngri flokki sigraði Dagbjört Jóna Tryggvadóttir, Elvar Orri Sæmundsson varð í öðru sæti og Ísey Lilja Waage og Valgerður Alda Heiðarsdóttir í því þriðja. Þá fengu Dagbjört Jóna Tryggvadóttir og Einar Örn Sigurðsson verðlaun fyrir sviðsframkomu.
Í eldri flokki sigraði Jóhann Smári Reynisson sem einnig fékk verðlaun fyrir sviðsframkomu. Í öðru sæti var Ásdís Aþena Magnúsdóttir og í þriðja sæti var Anna Rakel Gunnarsdóttir.
Sagt er frá þessu á vef Grunnskóla Húnaþings vestra en þar segir einnig: „Það er ljóst að ekki þarf að hafa áhyggjur af framtíð menningar í Húnaþingi vestra þegar þessir nemendur taka við keflinu.“
Á vefnum fá þeir Valdimar, Guðmundur, Aðalsteinn, Hjörtur og Gunnar sérstakar þakkir fyrir undirspilið, faglega leiðbeiningu og framsetningu á atriðum. „Það er ekki sjálfgefið að nemendur í grunnskóla fái svona metnaðarfullan stuðning frá blómlegu tónlistarlífi,“ segir á vef Grunnskóla Húnaþings vestra.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |