Fréttir | 28. janúar 2019 - kl. 11:14
Leikhópurinn Lotta heimsækir Húnaþing

Leikhópurinn Lotta heimsækir Húnavatnssýslur í dag og á morgun og býður upp á stórskemmtilegan fjölskyldusöngleik með Rauðhettu og úlfinum, Hans og Grétu og grísunum þremur. Leikhópurinn er landsmönnum að góðu kunnur en hann hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Hópurinn verður í Félagsheimilinu á Hvammstanga í dag klukkan 17:30 og í Félagsheimilinu á Blönduósi á morgun klukkan 17:30.

Hópurinn, sem hefur sérhæft sig í sýningum utandyra, er nú annan veturinn í röð að sýna í Tjarnarbíó og um allt land. Rauðhettu setti hópurinn fyrst upp árið 2009 en nú tíu árum síðar verður rykið dustað af þessu skemmtilega verki og fært nýjum og gömlum áhorfendum í glænýjum búningi.

Ævintýrið um Rauðhettu og úlfinn þekkja allir en í meðförum Lottu hefur tveimur þekktum ævintýrum til viðbótar verið bætt í leikinn. Það eru sögurnar um grísina þrjá og systkinin Hans og Grétu. Þá eru í verkinu meira en 10 stórskemmtileg lög sem binda söguna saman. Úr verður gómsætur ævintýrakokteill sem enginn má láta framhjá sér fara.

Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
Handritshöfundur: Snæbjörn Ragnarsson.
Höfundar laga og texta: Baldur Ragnarsson og Snæbjörn Ragnarsson.
Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Árni Beinteinn Árnason, Sigsteinn Sigurbergsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson.
Lýsing:  Ólafur Stefán Ágústsson.
Hljóðmynd: Baldur Ragnarsson.
Búningar: Rósa Ásgeirsdóttir.
Leikmynd: Andrea Ösp Karlsdóttir, Ágústa Skúladóttir og Sigsteinn Sigurbergsson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga