Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:27 0 0°C
Laxárdalsh. 00:27 0 0°C
Vatnsskarð 00:27 0 0°C
Þverárfjall 00:27 0 0°C
Kjalarnes 00:27 0 0°C
Hafnarfjall 00:27 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Tilkynningar | 14. febrúar 2019 - kl. 15:00
Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna
Fréttatilkynning

Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna verður í ár haldin í fimmta skiptið. Hátíðin, sem núna í ár er fyrst orðin sjálfstæð eining, byrjaði sem áfangi í kvikmyndagerð hjá Fjölbrautaskólanum við Ármúla og hefur verið að fullu rekin áfram af nemendum skólans. Nemendur skólans sjá um að kjósa hátíðarstjóra, gera dagskrá hátíðarinnar, finna heiðursgesti, hanna plakat og katalog ásamt því að dreifa þeim báðum bæði til allra framhaldsskóla og víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Núna á þessu ári eru nemendur við kvikmyndahátíðina að byrja að nýta sér viðskipta- og hagfræðinemendur til að sinna bókhaldi og markaðsmálum fyrir hátíðina.

Hátíðin var sýnd fyrir fimm árum síðan í fyrsta skipti og var hún á þeim tíma sýnd í húsnæði Fjölbrautaskólans við Ármúla en hefur hátíðin verið sýnd í Bíó Paradís þar eftir. Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna byrjaði sem pælingar á því hvernig hægt væri að kenna nemendum viðburðastjórnun og hvernig hægt væri að setja upp hátíð sem þessa. Hugmyndin á bak við Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna er byggð á norrænu heimilda- og stuttmyndahátíðinni Nordisk Panorama, en kennarinn sem sér um áfangann á bak við hátíðina þekkir norrænu hátíðina mjög vel og veit vel hvað hann er að gera í sínu fagi.

Þrír skólar á landinu kenna kvikmyndanám og hafa þeir hingað til allir tekið þátt með innsendingum mynda á hátíðina og tekið þátt í keppninni. Þeir skólar sem bjóða uppá kvikmyndanám eru Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Tækniskólinn í Reykjavík og Borgarholtsskóli. Hátíðin er þó ekki takmörkuð við þessa þrjá skóla og getur hver sem er úr hvaða skóla sem er sent inn sína stuttmynd. Stuttmyndir fyrir hátíðina hafa borist frá Menntaskólanum á Egilsstöðum, Menntaskólanum við Hamrahlíð, Fjölbrautaskólanum við Garðabæ, Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóla Vesturlands, Menntaskóla Borgarfjarðar. Hátíðin er því ekki takmörkuð við höfuðborgarsvæðið og eru skólar víðsvegar um landið að senda inn myndir í hátíðina. Í ár eru sex skólar að senda inn myndir á hátíðina víðsvegar um landið.

Hátíðin hefur alltaf verið af öllu leyti byggð á hugmyndum og frumkvæði nemenda og er kennarinn eingöngu til staðar til leiðbeiningar og að passa upp á að ekkert fari suður.

Hátíðin hefur frá upphafi verið fjármögnuð með styrkjum frá hinum ýmsu aðilum en helstu styrktaraðilar hátíðarinnar eru Mennta- og menningarmálaráðherra, Kvikmyndamiðstöð Íslands og Landsbanki Íslands. Aðrir styrktaraðilar sem hafa komið að hátíðinni má nefna New York Film Academy, Kvikmyndaskóli Íslands o.fl.

Innan hátíðarinnar er haldin keppni milli stuttmynda og má þar nefna keppni um besta leik, bestu mynd, bestu tæknilegu útfærsluna og áhorfendaverðlaun. Meðal verðlauna á hátíðinni má nefna vikunámskeið hjá New York Film Academy, gjafabréf frá Landsbanka Íslands o.fl.

Hátíðarstjóri hátíðarinnar í ár er Ísak Óli Borgarsson, aðstoðarhátíðarstjóri hátíðarinnar er Natan Ferrua Edwardsson. Þeir tveir hafa unnið vel saman og hafa staðið sig vel í uppsetningu og gerð hátíðarinnar ásamt því að aðstoða alla sem aðstoð þurfa.

Miklir heiðursgestir hafa verið á hátíðinni og má þar nefna að Ragnar Bragason, Jón Gnarr, Dóra Jóhannsdóttir, Karl Ágúst Úlfsson og fleiri hafa verið hátíðargestir á fyrri hátíðum. Hátíðargestir í ár verða stórmenni í kvikmyndabransanum og er von á mjög góðum viðtökum.

Hátíðin verður í ár haldin þann 16. og 17. febrúar í Bíó Paradís og er vert að taka fram að allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið