Fréttir | 14. febrúar 2019 - kl. 15:08
SSNV leitar eftir þátttakanda í tilraunaverkefni í Norðurslóðaverkefni

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er þátttakandi í Norðurslóðaverkefni sem kallast Digi2Market, sem útfærst gæti á íslensku sem stafræn leið til markaðar. Verkefninu er ætlað að taka á ýmsum áskorunum sem fyrirtæki á jaðarsvæðum kunna jafnan að glíma við, svo sem smæð markaðar, fjarlægð frá markaði og einangrun. SSNV leitar nú eftir þátttakanda í verkefnið.

Á vef SSNV segir að markmið verkefnisins sé m.a. að þróa nýjungar í stafrænum markaðs- og söluhugbúnaði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, aðstoða þau við að nýta sér stafræna möguleika og viðskiptamódel sem stuðli að umhverfisvænum rekstri. Þá sé enn fremur stefnt að því að þátttaka í verkefninu stuðli að alþjóðlegum vexti fyrirtækja.

Í fyrsta fasa leitar SSNV að einu fyrirtæki á Norðurlandi vestra sem hefur brennandi áhuga og vilja til að gera reksturinn umhverfisvænni og skuldbinda sig jafnframt til þátttöku í verkefninu næstu tvö árin. Viðkomandi þarf að hafa áhuga og vilja til að fara í naflaskoðun á rekstri síns fyrirtækis og vinnu við að greina stöðu þess í dag og greina leiðir til að gera reksturinn umhverfisvænni. Notast verður við umhverfisvænt módel sem þróað verður innan verkefnisins.

Í öðrum fasa verður kallað eftir fleiri fyrirtækjum til þátttöku þar sem meiri áhersla verður m.a. á stafræna markaðssetningu.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við Sveinbjörgu Pétursdóttur á sveinbjorg@ssnv.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga