Tilkynningar | 28. febrúar 2019 - kl. 06:43
Í tilefni af 50 ára afmæli Krabbameinsfélags Austur-Húnvetninga, býður félagið til afmælisveislu í Félagsheimilinu á Blönduósi, sunnudaginn 3. mars klukkan 15:00. Á dagskrá verða ávörp, tónlistaratriði, og veislukaffi.
Fram koma eftirtaldir tónlistarmenn:
Friðrik Halldór trúbador
Hugrún Lilja Pétursdóttir píanó
Hugrún og Jonni
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
Allir hjartanlega velkomnir.
Félagið vill þakka öllum sem veitt hafa stuðning á liðnum árum.
Styrktaraðilar:
Arion banki
Bifreiðarverkstæði Blönduós ehf.
Blönduósbær
Húnavatnshreppur
Húsherji ehf.
Kjörbúðin, Blönduósi
SAH Afurðir ehf.
Steinull hf.