Fréttir | 23. febrúar 2019 - kl. 09:59
Handbendi brúðuleikhús á N4

Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 heimsótti nýverið brúðuleikhúsið Handbendi á Hvammstanga. Þar ræður Greta Clough ríkjum en hún hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir brúðuleikhúsið sitt. Greta býr til brúðurnar sjálf og setur upp metnaðarfullar sýningar ásamt öðru listafólki úr heimabyggð og erlendis frá. Greta er alin upp í Vermont í Bandaríkjunum þar sem hún heillaðist fyrst af þessu listformi.

Sjá má heimsókn N4 til Gretu hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga