Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:09 0 0°C
Laxárdalsh. 23:09 0 0°C
Vatnsskarð 23:09 0 0°C
Þverárfjall 23:09 0 0°C
Kjalarnes 23:09 0 0°C
Hafnarfjall 23:09 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | 14. mars 2019 - kl. 14:22
Opnir fundir GróLindar á Norðurlandi vestra
Tilkynning

Árið 2017 hófst samstarfsverkefni Landssamtaka sauðfjárbænda, Landgræðslunnar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Bændasamtaka Íslands um að vakta og meta ástand gróður- og jarðvegsauðlinda landsins. Verkefnið fékk nafnið GróLind og er markmið þess að gera reglulega  heildarmat á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins og þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu auðlindanna.

Dagleg umsjón verkefnisins er í höndum Landgræðslunnar en einnig er starfandi fimm manna faghópur undir forystu Landssamtaka sauðfjárbænda, verkefnið er fjármagnað til 10 ára í gegnum búvörusamningana. Á fyrstu tveimur árum verkefnisins hefur verið unnið að þróun og skipulagi þess m.a. að ákvarða hvaða  breytur skuli vakta, velja gögn og aðferðir til að meta ástand á auðlindunum og byggja upp samstarfsnet verkefnisins. Einnig hefur verið unnið að kortlagningu beitilanda á landsvísu og atferli sauðfjár á afréttum kannað með staðsetningartækjum.

Gott samstarfi við alla hagsmunaaðila, m.a. bændur og aðra landnotendur, stjórnir fjallskilamála, sveitarfélög, háskóla, opinberar stofnanir og fyrirtæki er grunnurinn að því að GróLind verði árangursríkt verkefni. Með góðu samstarfi er tryggt að verkefnið nýtist sem best til að bæta landnotkun; það sé byggt á traustum vísindalegum grunni og unnið  á  skilvirkan hátt.

Nú á vormánuðum mun GróLind halda kynningar- og samráðsfundi um land allt. Á fundunum verður verkefnið kynnt  og kallað eftir  hugmyndum og athugasemdum um framkvæmd og þróun þess.  Vonast starfsfólk Landgræðslunnar til að heimafólk sjái sér fært að mæta og taka þátt í þróun verkefnisins.

Tíma- og staðsetningar fundanna á norðurlandi vestra eru eftirfarandi:

  • Fimmtudagurinn 21. Mars kl 14:00 – Félagsheimilið Víðihlíð, V-Húnavatnssýslu
  • Fimmtudagurinn 21. Mars kl 20:00 – Menningarhúsið Miðgarður, Varmahlíð

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.grolind.is, einnig er hægt er að senda fyrirspurnir eða athugasemdir um verkefnið á grolind@land.is.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið