Tilkynningar | 19. mars 2019 - kl. 09:40
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi

Fáein sæti eru laus í ferð Félags eldri borgara til Austurlands dagana 24.-26. ágúst 2019. Gist verður í tvær nætur á Hótel Svartaskógi í Jökulsárhlið. Leiðsögumaður um Fljótsdalshérað verður Þorsteinn Bergsson. Gisting í tvær nætur og máltíðir er fyrir tveggja manna herbergi kr. 31.270 á mann. Eins manns herbergi kostar kr. 38.786 kr. Félagið tekur þátt í ferðakostnaði að hluta.

Nánari tilhögun og greiðsla staðfestingargjalds verður auglýst síðar.

Hægt er að skrá sig fyrir 25.mars  nk.  hjá Sigurjóni í síma 452 4993 og 862 8603 eða hjá Kolbrúnu í síma 690 3124.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga