Fréttir | 22. mars 2019 - kl. 08:15
Félagsvist í Félagsheimilinu
Frá Kvenfélaginu Vöku

Kvenfélagið Vaka stendur fyrir tveggja kvölda félagsvist í Félagsheimilinu á Blönduósi.

Fyrra kvöldið verður fimmtudaginn 28. mars og það síðara 4. apríl nk.

Kvöldin hefjast klukkan 20 og aðgangseyrir er 1500 krónur og kaffi og með því innifalið. 

Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.

Kvenfélagið Vaka

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga