Fulltrúar sveitarfélaga, fjarskiptasjóðs og ráðuneytisins við undirritun samninga við sveitarfélög um ljósleiðaravæðingu í dreifbýli. Ljósm: stjornarradid.is
Fulltrúar sveitarfélaga, fjarskiptasjóðs og ráðuneytisins við undirritun samninga við sveitarfélög um ljósleiðaravæðingu í dreifbýli. Ljósm: stjornarradid.is
Fréttir | 22. mars 2019 - kl. 20:43
Samið við 23 sveitarfélög um styrki til ljósleiðaravæðingar í dreifbýli

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Páll Jóhann Pálsson, formaður fjarskiptasjóðs, og forsvarsmenn sveitarfélaga, skrifuðu í dag undir samninga um samvinnustyrki frá fjarskiptasjóði og byggðastyrki frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Fjórtán sveitarfélög eiga að þessu sinni kost á byggðastyrk á grundvelli byggðaáætlunar og 22 sveitarfélög eiga kost á samvinnustyrk. Þar á meðal er Húnaþing vestra sem á kost á 58,4 milljónum króna í samvinnustyrk og 10 milljónum í byggðastyrk.

Samningarnir gefa 23 sveitarfélögum kost á samtals um 1.475 milljónum króna í styrki á árunum 2019 til 2021 til þess að tengja með ljósleiðara allt að 1.700 styrkhæfa staði auk fjölda annarra bygginga samhliða sem ekki hljóta styrk. Eigið framlag sveitarfélaga/íbúa er umtalsvert og að lágmarki 500.000 kr. fyrir hvern tengdan styrkhæfan stað. Samningar árin 2020 og 2021 eru með fyrirvara um fjárlög.

Styrkveitingarnar miðast við að tryggja verklok hjá allflestum sveitarfélögum sem um ræðir og þar með að náð verði að mestu leyti markmiði ríkisstjórnarinnar um ljósleiðaravætt dreifbýli landsins. Stefnt er að því að lokaúthlutun á grundvelli Ísland ljóstengt verði á næsta ári með það að markmiði að öll áhugasöm sveitarfélög ljúki lagningu ljósleiðara í dreifbýli fyrir árslok 2021 hið síðasta.

Verkefnið Ísland ljóstengt hófst formlega vorið 2016. Er þetta því fjórða úthlutun fjarskiptasjóðs og jafnframt þriðja úthlutun ráðuneytisins á grundvelli byggðaáætlunar á jafn mörgum árum.

Yfirlit um styrki í tengslum við Ísland ljóstengt má sjá hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga