Fréttir | 23. mars 2019 - kl. 10:01
Húnavallaskóli hélt forkeppni fyrir Skólahreysti

Á mánudaginn fór fram í Húnavallaskóla forkeppni fyrir Skólahreysti 2019. Nemendur í 8.-10. bekk kepptu sín á milli um hver færi fyrir hönd skólans í keppnina þetta árið en hún verður haldin á Akureyri 3. apríl næstkomandi. Á vef Húnavallaskóla segir að líf og fjör hafi verið í íþróttasalnum þar sem nemendur voru hvattir áfram.

Sigurvegarar og fulltrúar Húnavallaskóla í Skólahreysti eru:
Ragnhildur Ásta Ragnarsdóttir, 10. bekk, armbeygjur og hreystigreip.
Guðmundur Sævar Þórsson, 10. bekk, upphífingar og dýfur.
Saulius Saliamonas Kaubrys, 10. bekk , hraðabraut.
Iðunn Eik Sverrisdóttir, 9. bekk, hraðabraut.

Varamenn:
Valdas Kaubrys, 8. bekk.
Hugrún Lilja Pétursdóttir, 10. bekk.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga