Tilkynningar | 28. apríl 2019 - kl. 09:58
Kór eldri borgara í Húnaþingi vestra heldur tónleika í Hvammstangakirkju miðvikudaginn 1. maí klukkan 15:00. Stjórnandi Ólafur Rúnarsson og undirleikari Elínborg Sigurgeirsdóttir. Á dagskránni eru létt lög sem vonandi koma áheyrendum í sumarskap.
Söngnemendur úr Tónlistarskóla Húnaþings vestra koma einnig fram á tónleikunum.
Veislukaffi í safnaðarheimilinu að loknum tónleikum. Aðgangseyrir kr. 2.500, frítt fyrir 12 ára og yngri.
Verið velkomin og gleðjist með okkur.
Kór eldri borgara í Húnaþingi vestra