Tilkynningar | 30. apríl 2019 - kl. 14:45
Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs
Tilkynning

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri miðvikudaginn 8. maí nk. kl. 14:00. Athygli er vakin á að allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétt. Á dagskrá fundarins eru venjuleg ársfundarstörf, tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins og önnur mál, löglega upp borin.

Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.

Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja frammi á skrifstofum Stapa og eru birtar á heimasíðu hans www.stapi.is.

Hægt verður að fylgjast með ársfundinum í vefútsendingu á heimasíðu sjóðsins. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga