Tilkynningar | 30. apríl 2019 - kl. 14:50
Bílabón 2019 – Meistaraflokkur Kormáks/Hvatar

Laugardaginn, 4. maí næstkomandi stendur meistaraflokkur Kormáks/Hvatar í fótbolta fyrir fjáröflun. Leikmenn liðsins ætla að verja öllum deginum í húsnæði N1 Pípara á Blönduósi við að þrífa og bóna bíla. 

Verðskrá:

• Fólksbílar: 10.000 kr.

• Jepplingar: 12.500 kr.

• Jeppar: 15.000 kr.

Innifalið er tjöruhreinsun, sápuþvottur, bón og létt þrif að innan. Tekið er á móti pöntunum frá og með deginum í dag og fram til kl. 20 á föstudag í síma 867-3799 (Lee Ann), netfangið lee.ann@bifrost.is eða á Facebook.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga