Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:13 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:13 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:13 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:13 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:13 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:13 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Greta Clough, listrænn stjórnandi Handbendis Brúðuleikhúss á Hvammstanga, er nýr formaður UNIMA á Íslandi og tekur hún við formennskunni af Bernd Ogrodnik. UNIMA eða Union Internationale de la Marionette, eru heimssamtök brúðulistafólks, stofnuð árið 1929. Samtökin eru með deildir í 101 landi og opinber samstarfsaðili UNESCO.
Í tilkynningu segir að brúðuleik megi finna í öllum tegundum samtímasviðslista. Í leikhúsi, kvikmyndum, á mannfögnuðum og atburðum, í menntaskyni og til lækninga, rétt eins og önnur listform, þá sé brúðuleikur leið til að samreina fólk og berjast gegn umburðarleysi og ofbeldi.
UNIMA á Íslandi var stofnað 1975 að frumkvæði Michael Meschke. Oft er upphaf brúðuleikhúss á Íslandi rakið til seinni heimstyrjaldarinnar þegar að flóttamaður úr Þýskalandi nasismans, Kurt Zier, listkennari og brúðuleikari stofnaði Maríonettufélagið og setti upp Fást eftir Göthe.
Árið 1954 var Íslenska brúðuleikhúsið stofnað af Jóni E. Guðmundssyni (d. 2005). Strengjabrúður hans eru nú í vörslu Leikminjasafns Íslands. Verk íslenskra brúðulistamanna, sem eru gífurlega fjölbreytt, hafa hlotið mikið lof, bæði hér heima og á erlendri grundu.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |