Frá undirrituninni. Ljósm: ssnv.is.
Frá undirrituninni. Ljósm: ssnv.is.
Fréttir | 27. maí 2019 - kl. 14:04
Hlaðvarpsþættir um Norðurland vestra

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og FM Trölli hafa undirritað samstarfssamning um framleiðslu á 30 hlaðvarpsþáttum sem jafnframt verða sendir út á útvarpsstöðinni FM Trölli. Er hér um nýjung að ræða í starfi samtakanna og eru þættirnir hugsaðir til kynningar á íbúum Norðurlands vestra og þeim fjölmörgu áhugaverðu verkefnum sem þeir taka sér fyrir hendur, að því er segir á vef samtakanna.

Þættirnir verða á formi viðtalsþátta. FM Trölli tekur að sér eftirvinnslu og birtingu þáttanna bæði á útvarpsstöð sinni og á hlaðvarpsveitum en starfsmenn SSNV sjá um að finna viðmælendur og taka viðtölin sjálf. Gert er ráð fyrir að fyrsta viðtalið fari í loftið í lok júní og þau verði svo birt vikulega.

Tekið er á móti ábendingum um áhugaverða viðmælendur á netfanginu ssnv@ssnv.is. Verkefnið er liður í kynningarátaki samtakanna. FM Trölli er útvarpsstöð og vefmiðill sem sendur er út frá Siglufirði. Einnig eru sendir út þættir frá Hvammstanga og í bígerð er að hefja útsendingar frá Sauðárkróki.

Á myndinni sjást Gunnar Smári Helgason eigandi Trölla og Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri SSNV undirrita samstarfssamning um verkefnið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga