Fréttir | 28. maí 2019 - kl. 10:16
Tap af rekstri Húnvetningafélagsins í Reykjavík

Aðalfundur Húnvetningafélagsins í Reykjavík verður haldinn í kvöld í Húnabúð í Skeifunni 11 í Reykjavík. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem formaður gerir grein fyrir störfum félagsins á liðnu ári og féhirðir leggur fram endurskoðaða reikninga. Samkvæmt rekstrarreikningi fyrir árið 2018 var félagið rekið með 1,8 milljón króna tapi í fyrra og skýrist það vegna eignar og reksturs Húnabúðar, að því er fram kemur á Facebook síðu Húnvetningafélagsins.

Í færslu á síðunni birtir Bjarni Ragnar Brynjólfsson áritaðan ársreikning Húnvetningafélagsins fyrir árið 2018. Tilgreinir hann helstu tölur og upplýsingar um fjárhag félagsins. Þar kemur fram að tekjur vegna Húnabúðar námu 3,3 milljónum og að tap vegna húsnæðisins var 2,3 milljónir, eða um 70% af tekjum. Aflmennt félagsstarf hjá Húnvetningafélaginu var rekið með 490 þúsund króna hagnaði en félagsgjöld námu rúmlega 500 þúsund.

Einnig kemur fram í færslu Bjarna Ragnars að reikningar í vanskilum í lok árs hafi numið um 31% af veltu ársins, að yfirdráttarheimild á hlaupareikningi hafi verið yfir þriggja milljón króna heimild og að lögfræðideild viðskiptabanka félagsins hafi verið með innheimtuaðgerðir í undirbúningi. Samanlagt hafi skammtímaskuldir í vanskilum og yfirdráttur á hlaupareikningi í árslok 2018 verið hærri en allar tekur félagsins á árinu.

Á aðalfundinum í kvöld verða jafnframt lagðar fram breytingatillögur stjórnar á lögum Húnvetningafélagsins í Reykjavík.

Ársreikninginn 2018, lög félagsins og breytingar á þeim má finna á Facebook síðu Húnvetningafélagsins í Reykjavík.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga