Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:25 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:25 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:25 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:25 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:25 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:25 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ársreikningur Húnavatnshrepps fyrir árið 2018 var samþykktur á fundi sveitarstjórnar á miðvikudaginn. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um rúmlega eina milljón króna samanborið við 2,7 milljón króna jákvæða afkomu árið 2017. Eigið fé sveitarfélagsins var í árslok 408 milljónir króna og handbært fé nam 7,7 milljónum. Eiginfjárhlutfall var 60,9%. Fjárfestingar í fyrra námu 52 milljónum og var stærsta einstaka fjárfesting í viðhaldsverkefni á húsnæði grunnskólans og íbúðarhúsnæðis á Húnavöllum.
Lántökur samstæðunnar voru 30 milljónir á árinu og langtímaskuldir námu 149 milljónum í árslok. Skuldaviðmið A hluta var 0% í árslok samanborið við 6% árið 2017 og skuldaviðmið B hluta var 37% samanborið við 55% árið 2017. Miðað er við að hlutfallið sé ekki hærra en 150%. Þetta kemur fram í fundargerð sveitarstjórnar.
Þar kemur einnig fram að rekstur B hluta fyrirtækja á árinu 2018 hafi verið neikvæður um rúmar 16 milljónir króna. Þar af var neikvæð rekstrarniðurstaða, að fjárhæð 4,4 milljónir vegna Auðkúluheiðar ehf. og 10,7 milljónir vegna Húnanets ehf. Í fundargerðinni segir.“Það er því ljóst að staða sveitarfélagsins er í jafnvægi þrátt fyrir stórauknar framkvæmdir, gott þjónustustig í sveitarfélaginu sem og aukinn kostnað sveitarfélaga almennt. Heildar niðurstaða B hluta félaga veldur nokkrum vonbrigðum. Ársreikningur fyrir árið 2018 gefur góða mynd af rekstri sveitarfélagsins og þeim mikla kostnaði við framkvæmdir vegna ljósleiðara og viðhald fasteigna sveitarfélagsins.“
E-listinn sat hjá við afgreiðslu ársreikningsins
Fulltrúar E-listans í sveitarstjórn vöktu athygli á slæmri fjárhags- og rekstrarniðurstöðu Húnanets. Heildarskuldir félagsins væru 131,8 milljónir og þar af væru 26,5 milljónir í skuld við Húnavatnshrepps, auk þess væri rekstrarhalli ársins í fyrra 10,7 milljónir en áætlun gerði ráð fyrir 677 þúsund krónum í halla. Fulltrúar E-listans gerðu einnig athugasemd við orð oddvita þegar fjárhagsáætlun 2019 var samþykkt í desember. Hún hafi verið samþykkt á þeim forsendum að eiginfjárstaða sveitarfélagsins væri sterk. Nú lægi fyrir ársreikningur 2018 og að framúrkeyrslan væri um 60 milljónir eða um 16% umfram fjárhagsáætlun með viðaukum. Fannst fulltrúum E-lista þetta óábyrg fjármálastjórnun og sátu þeir því hjá við afgreiðslu ársreikningsins.
Meirihlutinn svaraði þessu með þeim orðum að vegna fjárfestinga- og framkvæmdaáætlunar 2019 væri rétt að taka fram að sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu væru í sameiningarferli. Því hafi meirihlutinn talið eðlilegt að stórauka viðhald á eignum sveitarfélagsins. Meirihlutinn lagið svo fram drög að breytingum á fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps vegna ársins 2019, til að mæta rekstrarniðurstöðu ársins 2018, þar sem seinkun hafi orðið á sameiningarferli sveitarfélaga.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |