Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 19:42 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 19:42 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 19:42 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 19:42 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 19:42 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 19:42 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Leikflokkur Húnaþings vestra sýndi í gærkvöldi söngleikinn Hárið í Þjóðleikhúsinu. Sýningin gekk fyrir fullu húsi á Hvammstanga í apríl og vakti mikla athygli, reyndar svo mikla að hún var valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins. Húsfyllir var í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi og mikil stemning á meðal leikhúsgesta. Þegar lokalag söngleiksins, Lifi ljósið, var flutt ætlaði þakið að rifna af Þjóðleikhúsinu er leikhúsgestir stóðu upp, sungu og klöppuðu með laginu og fyrir leikendum og aðstandendum sýningarinnar. Frábær skemmtun og á leikflokkurinn mikið hrós skilið.
Söngleikurinn Hárið er eftir þá James Rado og Gerome Ragni en tónlistin er eftir Galt MacDermot. Leikstjóri sýningarinnar er Sigurður Líndal Þórisson. Alls eru leikarar 21 talsins auk fimm manna hljómsveitar. Um 38 manns koma að sýningunni. Að öðrum ólöstuðum stóðu þau Ástrós Kristjánsdóttir og Valdimar Gunnlaugsson sig frábærlega í hlutverkum Sheila og Berger. Herdís Harðardóttir var sérlega sannfærandi í hlutverki Jeanie og leikur og söngur Aldísar O. Jóhannesdóttur og Ingunnar E. Rafnsdóttur var góður. Arnar Hrólfsson vakti einnig mikla lukku en hann brá sér í nokkur hlutverk, m.a. sem ferðamaður, faðir og hermaður. Þá var leikur Harðar Gylfasonar skemmtilegur í hlutverki Claude. Hljómsveitin sló ekki feilnótu, var feykilega þétt og samhæfð og hljóðið mjög gott.
Önnur sýning verður í kvöld í Þjóðleikhúsinu og er hægt að kaupa miða á Tix.is. Óhætt er að mæla með þessari frábæru skemmtun.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |