Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:15 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:15 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:15 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:15 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:15 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:15 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Það hefur verið mikið umleikis hjá Markviss undanfarið. Landsmót STÍ í Skeet var haldið helgina 29.-30. júní á skotæfingasvæði Markviss og nú um helgina gerðu þrír keppendur strandhögg á SÍH Open móti í haglagreinum. Þar bar hæst að Snjólaug M. Jónsdóttir varði titil sinn sem Íslandsmeistari kvenna í Trapp, og Guðmann Jónasson og Brynjar Þ.S. Guðmundsson enduðu í 2. og 4 sæti í A flokki í skeet. Eins gerði Jón B. Kristjánss fína ferð á sumarmót Skotfélags Akureyrar í BR50, 1. sæti í opnum flokki og 2. sæti í sporter flokki.
Framundan er svo þéttskipuð dagskrá móta í kúlugreinum hjá Jónba, m.a. Íslandsmeistaramót í BR50. Rólegra verður yfir haglagreinum fram undir mánaðarmót en þá fer allt á fullt þar aftur.
Árviss opinn dagur hjá Markviss verður á Húnavöku og Höskuldsmót í Skeet fer fram sama dag í beinu framhaldi eins og vant er. Æfingabúðir í bæði hagla og kúlu-greinum verða fyrir keppnisfólk Markviss og aðra áhugasama 27.-30. júlí þar sem Breski þjálfarinn Paul Gerwyn Morris verður við stjórnvölinn. Þess ber líka að geta að stefnt er að aukinni samvinnu milli Markviss og SIH varðandi mótahald og leiðsögn í Nordisk Trap á komandi misserum.
Eins er uppbygging á svæðinu á fullum skriði undir styrkri stjórn uppbyggingarstjóra og framkvæmdanefndar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |