Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 16. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:59 0 0°C
Laxárdalsh. 11:59 0 0°C
Vatnsskarð 11:59 0 0°C
Þverárfjall 11:59 0 0°C
Kjalarnes 11:59 0 0°C
Hafnarfjall 11:59 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Fréttir | 19. júlí 2019 - kl. 11:27
Áskorun um hófsemi í veiði

Hafrannsóknarstofnun hvetur veiðifélög og stangveiðimenn til að gæta hófsemi í veiði og að sleppa sem flestum löxum aftur eftir veiði. Það sé mikilvægt til að hrygningarstofninn í haust verði eins sterkur og unnt er. Laxveiði í ám landsins hefur verið með minnsta móti í sumar og eru nokkrar ástæður fyrir því að sögn Hafrannsóknarstofnunar.

Klakárgangurinn frá 2015 var með minnsta móti í ám á Norður- og Austurlandi sem leiddi til þess að gönguseiðaárgangur 2017 var lítill og skilaði hann fremur litlum smálaxagöngum 2018 og svo fáum stórlöxum 2019. Á Suður- og Vesturlandi var klakárgangurinn frá 2015 lítill sem leiddi til færri gönguseiða sem gengu út 2018 og þar með færri löxum nú í sumar. Auk þess hefur verið lítið vatn í ánum í sumar og aðstæður fyrir uppgöngu laxa og veiði með versta móti líkt og veiðitölur það sem af er sumri bera með sér.

Hafrannsóknarstofnun telur þó að enn sé von um að smálaxagöngur á Norður- og Austurlandi eigi eftir að skila sér að einhverju marki. Heimtur úr sjó hafi almennt farið minnkandi við Atlantshaf  undanfarin ár líkt og komið hafi fram í nágrannalöndunum. Ástæður þess séu ekki þekktar og ekki verði séð að hægt verði að hafa áhrif á það sem gerist í hafinu.

„Ljósu fréttirnar eru þær að í kjölfar þess að í flestum ám er skylt að sleppa stórlöxum hefur þeim tekið að fjölga á nýjan leik sem hefur skilað aukinni hrygningu og sterkari seiðaárgöngum síðustu árin sem gefur ákveðna von um betri tíð á næstu árum. Það sem í okkar valdi stendur er að gæta þess að ávalt sé nægilega stórir hrygningarstofnar til að nýta þau búsvæði sem í ánum eru til seiðaframleiðslu. Miðað við núverandi aðstæður er ljóst að hrygningarstofnar haustsins verða með minnsta móti og hvetur Hafrannsóknastofnun veiðimenn og veiðiréttarhafa til að gæta hófs við veiðar og sleppa sem allra flestum löxum sem veiðast til að hrygningarstofn haustsins verði sem stærstur. Annars er hætta á að sá seiðaárgangur sem undan þeim kemur verði einnig smár og veiðiþol laxastofna minnki enn frekar,“ segir í tilkynningu frá Hafrannsóknarstofnun.

Hvernig best er að stunda veiðar og sleppa laxi er víða hægt að finna á netinu t.d. á www.angling.is.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið