Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 23. júlí 2019 - kl. 17:24
Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga í Húnaþingi vestra

Nefnd um veitingu umhverfisviðurkenninga í Húnaþingi vestra óskar er eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenninga í sveitarfélaginu árið 2019. Með umhverfisviðurkenningum vill nefndin sem er skipuð af sveitarstjórn Húnaþings vestra vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilega sveitarbæi og atvinnulóðir. Einnig má benda á önnur svæði eða einstaklinga/hópa sem skilið ættu viðurkenningu.

Hægt er að senda tölvupóst á netfangið;  umhverfisstjori@hunathing.is eða með því að hringja á skrifstofu Húnaþings í síma 455-2400, fyrir 25. júlí nk.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga