Tilkynningar | 24. júlí 2019 - kl. 13:27
John Garner verður með golfkennslu föstudaginn 26. júlí og laugardaginn 27. júlí. Krakkar á aldrinum 6-10 ára byrja klukkan 10:00 á laugardaginn í boði golfklúbbsins og 10-15 ára klukkan 11:30 á laugardaginn, einnig í boði golfklúbbsins. Kvennatími er klukkan 17:00 á föstudaginn. Tilvalið fyrir konur á öllum aldri að mæta.
Einkatímar og hóptímar frá klukkan 15:00 á föstudag og framúr. Skráning á jgjon@mi.is eða í síma 864 4846.
Golfleikjanámskeið fyrir 6-10 ára verður haldið mánudaginn 29. til 31. júlí.