Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:37 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:37 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:37 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:37 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:37 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:37 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Byggðarráð Húnaþings vestra telur að tillaga nefndar um stofnun miðhálendisþjóðgarðs feli í sér verulega skerðingu á valdheimildum sveitarfélaga og réttinda íbúa þeirra. Mörk þjóðgarðsins í tillögunni virðist fyrst og fremst vera tilkomin til þess að styrkja eignar- eða ráðstöfunarrétt ríkisins yfir landi á hálendi Íslands. Í bókun byggðarráðs frá fundi þess 12. ágúst síðastliðinn er það ósk þess að land innan marka sveitarfélagsins verði ekki hluti fyrirhugaðs þjóðgarðs á miðhálendinu.
Bókunin er lögð fram undir liðnum „umsögn um verkefni nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu, mál númer S-135/2019“ sem nú er í Samráðsgátt stjórnvalda. Byggðarráð Húnaþing vestra vill benda á að samkvæmt lögum er skipulagsvald, þ.e. vinnsla og samþykkt svæðis-, aðal- og deiliskipulags á höndum sveitarfélaga. Það er því ekki í verkahring ráðherraskipaðrar nefndar að hafa með beinum hætti áhrif á skipulag sveitarfélaga með því að gera tillögu að legu þjóðgarðs á miðhálendinu innan marka þeirra.
Í bókun byggðarráðs segir:
„Í fyrirliggjandi tillögu um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu felst skerðing á skipulagsvaldi sveitarstjórna með færslu þess til stjórnunar- og verndaráætlana. Þannig eru áhrif sveitarfélaga til þess að móta sér stefnu um uppbyggingu innviða, landnýtingu og landvernd innan marka þeirra verulega takmörkuð. Byggðarráð Húnaþings vestra bendir á að stjórnunar- og verndaráætlanir geta ekki takmarkað skipulagsvald sveitarstjórna.
Þjóðlendur innan marka Húnaþings vestra eru í afréttareign og því fylgir upprekstrar- og veiðiréttur auk annarra nýtingarréttinda. Byggðarráð Húnaþing vestra vill árétta mikilvægi þess að upprekstrar- og nýtingarréttur haldist um alla framtíð. Samkvæmt tillögum nefndarinnar verður nýting afrétta og ýmiskonar starfssemi háð stjórnunar- og verndaráætlunum. Stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu hefur þannig í för með sér skerðingu á nýtingarrétti íbúa sveitarfélagsins og takmörkun á rétti þeirra til umferðar um land innan marka þess. Einnig er líklegt að setning atvinnustefnu innan þjóðgarðs valdi verulegum takmörkunum á tekjuöflun vegna starfsemi innan marka hans.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |