Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:45 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:45 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:45 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:45 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:45 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:45 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarfélagið Skagaströnd lýsir mikilli andstöðu við hugmyndir um kvótasetningu á grásleppu. Slík framkvæmd komi til með að rýra verulega möguleika á nýliðun innan greinarinnar, segir í umsögn sveitarfélasins við drögum að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða var birt í Samráðsgátt stjórnvalda í síðasta mánuði.
Í umsögninni segir að á Skagaströnd hafi útgerð smábáta eflst umtalsvert á undanförnum árum og að heimamenn hafi stofnað fyrirtæki og fjárfest í kvótalausum smábátum. Rekstrargrundvöllur þessara fyrirtækja byggi á strandveiðum, úthlutuðum byggðakvóta og í mörgum tilfelum veiðum á grásleppu. Útgerðaraðilar sem nýlega hafi fjárfest í grásleppuleyfum muni í flestum tilvikum ekki njóta þeirrar veiðireynslu sem hafi verið aflað á tiltekið leyfi. Það muni því koma verulega illa út fyrir þá aðila komi til þessarar varhugaverðu aðgerðar við að kvótasetja tegundina.
Þá segi í umsögninni að kvótasetning grásleppu með frjálsu framsali veiðiheimilda og tilheyrandi samþjöppun innan greinarinnar komi því til með að veikja atvinnulíf þar sem síst skyldi.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |