Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:02 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:02 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:02 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:02 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:02 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:02 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara og landsbókarvarðar hefur bókmenntamerking verið sett upp við Laufásveg 5 í Reykjavík. Húsið byggðu Jón og Katrín Þorvaldsdóttir Sívertsen kona hans árið 1880 og þar bjó Jón til dauðadags. Húsið hefur stundum verið nefnt Jónshús.
Með menningarmerkingunni vill Reykjavíkurborg heiðra minningu Jóns Árnasonar og hans merka starf sem þjóðsagnasafnara, en Jón var frumkvöðull í söfnun þjóðsagna hér á landi. Hann hóf starf sitt sem þjóðsagnasafnari árið 1845 með Magnúsi Grímssyni og árið 1852 kom út safn þeirra Íslenzk ævintýri. Þjóðsagnasafnið sem kennt er við Jón kom síðan fyrst út í tveimur bindum árin 1862 og 1864.
Fæðingarafmæli Jóns hefur verið minnst með ólíkum hætti á árinu, bæði á Hofi á Skagaströnd þar sem hann fæddist og í Reykjavík. Jón safnaði þjóðsögum stóran hluta starfsævi sinnar og gegndi fjölmörgum störfum; var meðal annars biskupsritari, umsjónarmaður í Lærða skólanum, meðumsjónarmaður með Forngripasafninu (síðar Þjóðminjasafni) og landsbókavörður frá 1848 til 1887.
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn heldur málþing um Jón Árnason þann 7. september í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli hans þar sem fjallað verður um líf hans og störf.
/Heimild: reykjavik.is
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |