Fréttir | 17. október 2019 - kl. 11:07
Íbúahátíð í Húnavatnshreppi

Haldin verður íbúahátíð í Húnavatnshreppi föstudagskvöldið 8. nóvember næstkomandi og hefst hún klukkan 20 í Húnavallaskóla en húsið opnar klukkan 19. Sveitarfélagið býður upp á mat og verður hægt að kaupa drykkjarföng á staðnum. Að auki verður hoppukastali fyrir börnin á staðnum.

Þeir sem ætla að taka þátt í hátíðinni eru beðnir um að tilkynna þátttöku fyrir 3. nóvember næstkomandi til:

Janine, Árholti í síma 847 6115
Heiðu, Ási í síma 861 0085
Helga Páls, Höllustöðum í síma 869 6563

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga