Fréttir | 05. desember 2019 - kl. 13:57
Feykir auglýsir eftir tilnefningum um mann ársins á Norðurlandi vestra

Líkt og undanfarin ár leitar héraðsfréttablaðið Feykir til lesenda með tilnefningar um mann ársins á Norðurlandi vestra. Tilnefningum skal koma til Feykis á netfangið feykir@feykir.is í síðasta lagi fyrir miðnætti sunnudagskvöldið 15. desember. Tilgreina skal fullt nafn, gera stutta grein fyrir viðkomandi einstaklingi og rökstyðja valið á einhvern hátt.

Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka var kjörin maður ársins fyrir árið 2018.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga