Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 22:01 0 0°C
Laxárdalsh. 22:01 0 0°C
Vatnsskarð 22:01 0 0°C
Þverárfjall 22:01 0 0°C
Kjalarnes 22:01 0 0°C
Hafnarfjall 22:01 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
HVE Hvammstanga. Ljósm. rikiseignir.is
HVE Hvammstanga. Ljósm. rikiseignir.is
Fréttir | 13. desember 2019 - kl. 11:01
Aðeins tilviljun að allt hafi bjargast

Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um ástandið sem skapaðist á sjúkrahúsinu og heilsugæslunni á Hvammstanga í vikunni en það var án rafmagns, nets og síma í tvo daga vegna óveðursins. Rætt er við Aldísi Olgu Jóhannesdóttur, svæðisfulltrúa heilbrigðismála á Hvammstanga og segir hún að í raun hafi það aðeins verið tilviljun að allt hafi bjargast, en að bregðast þurfi við svo álíka sambandsleysi við sjúkrastofnun geti ekki komið upp að nýju.

Í kjölfar ofsaveðursins í vikunni datt út nettengingar og símakerfi, sem og farsímakerfið og Tetra-fjarskipakerfið á Norðurlandi vestra. Á stofnuninni á Hvammstanga starfa í heild á bilinu 50-60 manns, en auk heilsugæslunnar eru á sjúkrahúsinu 18 rúm og 2 hjúkrunarrými, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.

Aldís segir að þau hafi reynt að hafa vaðið fyrir neðan sig og heyrt í RARIK fyrir óveðrið. Þar hafi þau þau svör fengist að ólíklegt væri að rafmagnið myndi fara af og ef svo færi yrði það í stutta stund. En svo datt rafmagnið út og lítið sem tók við. Engin aukarafstöð er hjá stofnuninni eða hjá sveitarfélaginu. Höfuðljós urðu því að duga í myrkrinu. Aldís segir að sem betur fer hafi ástand sjúklinganna ekki verið þannig að rafmagnsleysið hafi haft mikil áhrif. Þá var ekki hægt að reka eldhúsið, en sjúkrahúsið er í raun heimili þess fólks sem þar er inni. Fyrr á þriðjudaginn hafi heilsugæslunni verið lokað, en til að tryggja mönnun á sjúkrahúsinu segir Aldís að þau hafi þurft að treysta á björgunarsveitir til að sækja og skutla heim starfsfólki. Það hafi í heildina tekist mjög vel.

„Það var í raun bara heppni að það var ekki eitthvað stórkostlegt sem gerðist á þessum tíma. Þetta bjargaðist í raun alveg ótrúlega, en er langt í frá að vera eðlilegt ástand eða vinnuumhverfi,“ segir Aldís í Morgunblaðinu í dag. Hún segir jafnframt að bregðast þurfi við þessu ástandi sem fyrst og þar þurfi fyrst og fremst að horfa til þess að hafa vararafstöð. Segir hún að þegar sé komin upp umræða bæði innan Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og innan sveitarfélagsins um það hvort hægt sé að koma upp slíkri varaaflstöð. Rafmagn komst aftur á Hvammstanga í gærmorgun.

Ítarlegri umfjöllun er um málið í Morgunblaðinu í dag.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið