Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:31 0 0°C
Laxárdalsh. 04:31 0 0°C
Vatnsskarð 04:31 0 0°C
Þverárfjall 04:31 0 0°C
Kjalarnes 04:31 0 0°C
Hafnarfjall 04:31 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Nöldrið | 15. desember 2019 - kl. 14:04
Látum heyra í okkur

Nú held ég sé kominn tími til að Húnvetningar láti heyra frá sér, minni landsmenn á að Norðurland vestra er meira en Skagafjörður og hér gerðust alvarlegir atburðir í veðurofsanum á dögunum. Íbúar á þessu svæði fengu illilega að finna fyrir óveðrinu sem gekk yfir landið núna í desember. Líklega fórum við Blönduósingar og nágrannar okkar best út úr þessum látum. Rafmagnið hélst að mestu leyti hjá okkur þessa daga og hita höfðum við, svo við þurftum ekki að kvarta. Það er meira en hægt er að segja um nágranna okkar sem sátu í myrkri og kulda. Ekki nóg með það. Á Hvammstanga t.d. datt allt út sem farið gat: Rafmagnið, símakerfið og þar með líka farsímakerfið, útvarpið og  tetrakerfið sem er einhverskonar öryggisnet sem ekki átti að geta klikkað. Ófært var um allt bæði innanbæjar og norður og suður og því lítið að treysta á hjálp úr þeim áttum. Það furðar mann að t.d. sjúkrahúsið sé ekki með öfluga rafstöð sem tekur við í svona uppákomum. Kannski hefur ekki fengist fjárveiting til kaupa á einni slíkri hjá hinum háu herrum syðra. Þá er rétt hægt að ímynda sér ástandið hjá kúabændum sem hafa samkvæmt tilskipunum ESB stækkað fjós sín og róbótavætt þau og eru algerlega háðir rafmagni bæði menn og skepnur sem orðnar eru afvanar handmjólkun. Það er ekki nóg að skikka fólk til að taka upp alla nýjustu tækni en svíkjast svo um að sjá til að þetta sama fólk hafi þann aðgang að rafmagni sem þarf fyrir öll herlegheitin ef eitthvað kemur upp á. Hvað ætli landsbyggðafólk þurfi lengi að láta bjóða sér að vera annars flokks þegnar þessa lands.

Forráðamenn í Húnaþingi vestra hafa þó verið duglegir að minna á ónýta vegi á svæðinu og ekki veitir af. Í upphafi þessa pistlar sagði að landsmenn þyrftu að átta sig á að Norðurland vestra nær vestur fyrir Vatnsskarð og Þverárfjall, því oftast er hlaupið yfir Húnavatnssýslur í umfjöllun um þetta svæði og ekki er það oft sem það úrvalsfólk sem starfar af krafti á N4 kemur hingað vestur til að spjalla við íbúa hér, þó það gerist svo sem öðru hverju. En Skagfirðingar kunna að kvarta og láta vita af sér og kannski er það eina ráðið til að eftir manni sé tekið. Ég teldi þó heillavænlegra að fjórðungurinn stæði saman í því að þrýsta á stjórnvöld að fara í það strax á nýju ári að byggja upp dreifikerfi rafmagns og fjarskipta, gera vegina öruggari, lagfæra heilbrigðiskerfið og yfir höfuð hugsa meira um hag fólksins sem byggir þetta land en að sýndi sig í þessum veðurhvelli að hér hefur allt of margt verið látið reka á reiðanum. Björgunarsveitirnar okkar eru frábærar en það er ekki hægt að velta vandanum alltaf til þeirra og lifa eftir íslenska mottóinu „þetta reddast“. Við landsbyggðafólk höfum áður séð það svart og ekki látið bugast og gerum það ekki heldur núna.

Senn gengur jólahátíðin í garð þar sem fólk kemur saman og fagnar komu frelsarans. Það er óskandi að veðrið verði til friðs fram yfir áramótin svo allir komist leiðar sinnar sem verða á faraldsfæti. Og bið ég áhugafólk um snjó, þessa sem aldrei fá nóg af snjó, að stilla nú óskum sínum í hóf fram yfir áramótin, svona fyrir okkur hina. Þetta hlýtur að vera nóg fyrir þá í bili. Og það held ég að sé komið ærið umræðuefni í jólaboðunum um norðanskotið nýliðna.

Um leið og ég óska öllum lesendum Húnahornsins gleðilegra jóla, minni ég fólk á að huga að reykskynjurum í húsum sínum  og hvet einnig Blönduósinga að tilnefna jólahúsið á Blönduósi og senda inn hérna á forsíðunni.

Gleðjumst á jólum og njótum þeirra.

Þangað til næst, kveðja Nöldri

Höf. Nöldri
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið